| |
| 1. 2604010 - Gjaldskrá Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Dalabyggðar 2026 | |
| Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar. | | |
|
| 2. 2604009 - Erindi vegna gatnagerðar við Vesturbraut 8, 10 og 12 | |
Byggðarráð þakkar framkomið erindi. Erindið rætt og vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar. | | |
|
| 3. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026 | |
Framlagt minnisblað um stöðu mála. Byggðarráð tekur jafnframt undir bókun atvinnumálanefndar þar sem nefndin hvetur íbúa til að fylgjast með og jafnframt nýta tækifærin sem skapast við móttöku og þjónustu við gesti á svæðinu. | | |
|
| 4. 2604011 - Laun vinnuskóla 2026 | |
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að hækkun launataxta vinnuskóla.
Ljóst er að ákveðin óvissa er uppi varðandi vinnuskóla Dalabyggðar í sumar í ljósi þess að ekki hafa neinar umsóknir um umsjón skólans borist, er það áhyggjuefni og ljóst að mál þurfa að skýrast á allra næstu dögum. | | |
|
| 5. 2603020 - Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega endurskoðun | |
| Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar sveitarstjórnar. | | |
|
| 6. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð | |
| Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag með áorðnum viðauka og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn. | | |
|
| 7. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla | |
| |
|
| 8. 2209012 - Laugar í Sælingsdal - samskipti | |
| Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|
| 9. 2406029 - Félagsheimilið Tjarnarlundur | |
| Það er ljóst að ekki verður aðhafst frekar á því kjörtímabili sem senn er á enda varðandi rekstrar- og eignarhald á Félagsheimilinu Tjarnarlundi. | | |
|
| 10. 2604020 - Umsókn um undanþágu vegna fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi | |
| Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni um undanþágu um fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi. | | |
|
| 11. 2604023 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts | |
| Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka. | | |
|
| 12. 2604026 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts | |
| Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka. | | |
|
Á fundinn mættu í gegnum fjarfundarbúnað þeir Pétur Friðjónsson og Rúnar Þór Guðbrandsson frá Byggðastofnun og tóku þátt í umræðum undir lið 13.
| | 13. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal | |
| Byggðarráð þakkar fulltrúum Byggðastofnunar fyrir fundinn. | | |
|
| 14. 2405006 - Húsnæði viðbragðsaðila | |
| Byggðarráð þakkar framkomið erindi, samþykkt að fela sveitarstjóra að ræða við bréfritara og fá fram frekari upplýsingar um m.a. aðgengi og innra skipulag húsnæðis þess sem um ræðir. | | |
|
Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjóri eigna- og umhverfissviðs sat fundinn undir lið 15.
| | 15. 2503006 - Úrgangsþjónusta - verðskrá söfnunarstöðvar | |
| Kristján Ingi kynnti stöðu mála. Byggðarráð þakkar Kristjáni Inga fyrir yfirferðina og fól honum og sveitarstjóra að útfæra tillögu að gjaldskrá söfnunarstöðvar úrgangs í Búðardal fyrir fund sveitarstjórnar 13. maí n.k. | | |
|
| 16. 2504018 - Afskriftabeiðnir | |
| Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni. | | |
|
Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjóri eigna- og umhverfissviðs sat fundinn undir lið 17.
| | 17. 2604025 - Ósk um að taka í fóstur lóðina Stekkjarhvammur 3 | |
| Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að umsækjendur fái að taka lóðina í fóstur og verði þau afnot framlag sveitarfélagsins að þessu jákvæða verkefni. | | |
|
| 18. 2602017 - Starfsmannamál | |
| |
|
Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjóri eigna- og umhverfissviðs sat fundinn undir lið 19 að hluta.
| | 19. 2604015 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki II - rekstur á fyrsta ársfjórðungi | |
Rætt um stöðuna á rekstri og hvað þurfi að taka tillit til við gerð Viðauka II við fjárhagsáætlun 2026.
Varðandi framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs þá er ljóst að bæta þarf í vegna lokafrágangs við Íþróttamiðstöð og vegna hitaveituframkvæmda á Laugum. Samþykkt að vísa til gerðar Viðauka II við fjárhagsáætlun 2026. | | |
|