| |
| 1. 2604002 - Breyting á deiliskipulagi Hvamma, lóð Rarik við Ásuhvamm 1a | |
| Tillagan rædd í nefndinni. Leyfi þarf frá Vegagerðinni til að húsið megi standa þarna og leggur nefndin til að þessi staðsetning verði borin undir hana. Nefndin ræddi mögulega legu gangbrautar vestan við götuna, sem þyrfti að kynna eigendum Ásuhvamms 2 og 4, þegar þar að kemur. Nefndin telur ekki að breytingin sé svo mikil að deiliskipulagsbreytingu þurfi. | | |
|
| 2. 2604004 - Laxaborg - stofnun lóðar og bygging dæluhúss | |
| Nefndin setur sig ekki upp á móti áformunum. | | |
|
| 3. 2403019 - Skógrækt á Skógum - framkvæmdaleyfi | |
| Samþykkt að vísa umsókninni til grenndarkynningar og er skipulagsfulltrúa falið að sjá um málið. | | |
|
| 4. 2604001 - Breyting á aðalskipulagi, Árblik í Suðurdölum | |
| Nefndin telur að með hliðsjón af gátlista geti breytingin fallið undir óverulega aðalskipulagsbreytingu, skv. 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga. Óveruleg breyting aðalskipulags samþykkt. Skipulagsfulltrúa falið að senda tillöguna til Skipulagsstofnunar. | | |
|
| 5. 2204014 - Brekkuskógur við Búðardal | |
| Nefndin fagnar þessum viðamiklu framkvæmdum. Í fjárhagsáætlun ársins er ekki gert ráð fyrir fjármagni í þessa tengingu, en leiðir til þess að koma þessum framkvæmdum á sem fyrst verða skoðaðar af alvöru. | | |
|
| 6. 2603022 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 36 m2 gistihúsi að Stóra-Vatnshorni | |
| Nefndin samþykkir erindið í samræmi við deiliskipulag svæðisins. | | |
|
| 7. 2603023 - Umsókn um stofnun lóðar í landi Ólafsdals | |
| Nefndin frestar málinu, þar sem kalla þarf eftir umsögn Vegagerðarinnar um mörk lóðarinnar innan vegsvæðis. | | |
|
| 8. 2603024 - Umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku D | |
| Nefndin felur byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. | | |
|
| 9. 2604005 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 50 m2 hesthúsi | | Nefndin samþykkir erindið, en felur byggingarfulltrúa að gera athugasemdir vegna ákvæða í lögum um dýravelferð. | | |
|
| |
| 10. 2603026 - Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands | |
| |
|