Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 356

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
24.09.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Guðlaug Kristinsdóttir formaður,
Ingveldur Guðmundsdóttir aðalmaður,
Guðbrandur Tumi Gíslason varamaður,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Staðgengill sveitarstjóra
Lagt til að eftirfarandi málum verði bætt á dagskrá:
- 2506007 Dalabúð og verði dagskrárliður 8.
- 2601027 Mál til umsagnar frá alþingi 2026 og verði dagskrárliður 9.
- 2609021 Þjóðarsátt um verðstöðugleika og verði dagskrárliður 10.
- 2609022 Vínlandssetur 2026 og verði dagskrárliður 11.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari kemur inn á fundinn undir dagskrárlið 1.
1. 2609008 - Fjárhagsáætlun 2026 - Viðauki IV (4)
Farið yfir forsendur vegna viðauka IV
Farið yfir forsendur vegna viðauka IV. Starfsfólki Dalabyggðar falið að vinna málið áfram. Byggðarráð beinir til allra deilda mikilvægi þess að standa áfram við áætlanir sem og leita svigrúms til hagræðinga vegna 2026.
Kristján Ingi Arnarsson, verkefnastjóri eigna- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárlið 2 og 3.
2. 2602031 - Vatnsveita
Minnisblað kynnt.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindi sem barst frá eigendum Höskuldsstaða um mögulega tengingu við Vatnsveitu Dalabyggðar.
Verkefnastjóra eigna- og umhverfissviðs og staðgengli sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og kynna fyrir umsækjendum þær forsendur sem unnið er með.
Endurskoða þarf reglur og gjaldskrá veitunnar, verður það unnið samhliða fjárhagsáætlunargerð.
3. 2609015 - Eftirlitsskýrsla vegna Guðrúnarlaugar
Lögð fram eftirlitsskýrlsa vegna mælinga við Guðrúnarlaug.
Byggðarráð leggur til að kannað verði með hvaða hætti hægt sé að bregðast við athugasemdum sem koma fram í skýrslu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Starfsfólki Dalabyggðar falið að fylgja málinu eftir.
4. 2609016 - Viðverustefna Dalabyggðar 2026
Lögð fram drög að uppfærðri viðverustefnu fyrir Dalabyggð
Byggðarráð samþykkir drög að viðverustefnu Dalabyggðar. Sveitarstjóra falið að uppfæra gögn til framlagningar hjá sveitarstjórn.
5. 2609017 - Erindi frá VR, LÍF og Fagfélögum
Lagt fram erindi frá VR, LÍF og Fagfélögum þar sem lagaðr eru fram spurningar tengdar kjarasamningum sem unnir voru 2024. Er svara óskað eins fljótt og unnt er.
Byggðarráð hyggst leita allra leiða til að halda hækkunum í hófi en um leið horfa til þess að mæta nauðsynlegum útgjöldum sveitarfélagsins. Í Dalabyggð er framboð lóða gott, hvort sem verið er að horfa á íbúðir eða iðnaðarhúsnæði. Þá eru lóðir Dalabyggðar í Búðardal leigulóðir svo byggingaraðilar þurfa ekki að leggja út fyrir kostnaði vegna kaupa á lóðum. Ekki er þörf á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla í Dalabyggð þar sem 12 mánaða gömul börn fá inni á leikskóla og um þessar mundir er ekki biðlisti á leikskólann. Dalabyggð hefur reynt að koma til móts við íbúa sl. ár með ýmsum öðrum hætti til að létta undir með rekstri heimila s.s. með að fella niður vistunargjald í leikskóla hjá elsta árgangi í leikskóla hverju sinni, boðið upp á frí afnot af líkamsræktaraðstöðu fyrir elli- og örorkulífeyrisþega, árskort á bókasafnið verið gjaldfrjálst og svo einnig styrkt við hin ýmsu félög sem sinna íþrótta- og tómstundastarfi til að kostnaður falli ekki alfarið á foreldra barna sem það nýta.
Dalabyggð.pdf
6. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027
Drög að gjaldskrám og tillögur að gjaldsskrárbreytingum lagðar fram til umræðu.
Tillögur kynntar að gjaldskrárbreytingum.
7. 2609018 - Samningur um beitarland 2026
Samningur við Hesteigendafélag Búðardals um beitarland er útrunninn. Staða mála rædd.
Sveitarstjóra og staðgengli falið að vinna málið áfram.
8. 2506007 - Dalabúð
Rætt um Félagsheimilið Dalabúð, umsjón og viðhald.
9. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.
Tekið til umræðu hvort Dalabyggð eigi að bregðast við málinu með umsögn.

Byggðarráð felur staðgengli sveitarstjóra að undirbúa drög að umsögn við málið.
0005_sveitarstjornarlog.pdf
10. 2609021 - Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Lagt fram erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands þar sem skorað er á sveitarfélög að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Óskað er eftir skriflegu svari sveitarfélagsins við erindinu.
Byggðarráð hyggst leita allra leiða til að halda hækkunum í hófi en um leið horfa til þess að mæta nauðsynlegum útgjöldum sveitarfélagsins.
2026-09-16 Þjóðarsátt um verðstöðugleika.pdf
11. 2609022 - Vínlandssetur 2026
Tekið er fyrir erindi frá rekstraraðilum Vínlandsseturs varðandi samning við Dalabyggð.
Byggðarráð staðfestir móttöku á uppsögn rekstraraðila á samningi við Dalabyggð um rekstur Vínlandsseturs og leggur til við sveitarstjórn að samningi við núverandi samningsaðila ljúki um næstu áramót, að beiðni rekstraraðila.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta