| |
Katrín Kristjánsdóttir, skólastjóri og Svanhvít Lilja Viðarsdóttir, fulltrúi starfsmanna sitja fundinn undir dagskrárlið 1 og 2.
| | 1. 2608012 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026-2027 | |
| Farið yfir stöðu starfsmannahalds og upphaf skólaársins. | | Leikskoladagatal-2026-2027.pdf | | |
|
Katrín Kristjánsdóttir, skólastjóri og Svanhvít Lilja Viðarsdóttir, fulltrúi starfsmanna sitja fundinn undir dagskrárlið 1 og 2.
| | 2. 2608011 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026-2027 | |
| Farið yfir stöðu starfsmannahalds, skólalóð og kostnað vegna þátttöku barna í skólatengdum viðburðum og ferðum. | | Grunnskoladagatal-2026-2027.pdf | | |
|
| 3. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 | |
Farið yfir þá málaflokka sem heyra undir nefndina. Nefndin leggur til að skoðaðir verði tilteknir lyklar og útfærslur á þjónustuþáttum í samræmi við umræður í nefndinni. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
| | Dagsetningar vegna vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027 - 2030, samþ.pdf | | |
|
Katrín Kristjánsdóttir, skólastjóri situr fundinn undir dagskrárlið 4. Ragnheiður Pálsdóttir víkur af fundi undir dagskrárliðnum.
| | 4. 2608009 - Skólavist barna utan lögheimilissveitarfélags | |
| Sveitarstjóra falið að yfirfara reglur varðandi málaflokkinn í samstarfi við skólastjóra og aðra hlutaðeigandi aðila. | | |
|
| 5. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 | |
| Fræðslunefnd leggur til að hin sameinaða nefnd heiti fræðslu- og félagsmálanefnd og að í henni sitji 5 fulltrúar. Sveitarstjóra falið að vinna áfram að sameiningu nefndanna í samræmi við umræður á fundi. | | |
|
| 6. 2606017 - Reglur um styrki til tónlistanáms utan Dalabyggðar | |
Rætt um núverandi reglur og mögulega útfærslu.
Fræðslunefnd leggur það til við sveitarstjórn að horft sé til lögbundinna verkefna og jafnræðis. Því leggur nefndin til að reglur Dalabyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum verði afnumdar en styrkur til tónlistarnáms utan lögheimilissveitarfélags hjá framhaldsskólanemum verði styrktækur gegnum frístundastyrk sveitarfélagsins skv. þeim viðmiðum sem þar koma fram.
Málinu vísað til sveitarstjórnar. | | |
|
| 7. 2608013 - Ungmennaráð 2026-2027 | |
| Fræðslunefnd felur sveitarstjóra að óska eftir framboðum og halda kynningarfund á starfi ungmennaráðs fyrir áhugasöm ungmenni. Fá fram hugmyndir frá ungmennum um hvað væri hægt að gera til að gera starfið enn fjölbreyttara og virkja fleiri til þátttöku. | | |
|