Til bakaPrenta
Fræðslunefnd Dalabyggðar - 154

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
27.10.2026 og hófst hann kl. 13:45
Fundinn sátu: Skjöldur Orri Skjaldarson formaður,
Guðrún Erna Magnúsdóttir varamaður,
Heiðrún Sandra Grettisdóttir varamaður,
Ragnheiður Pálsdóttir aðalmaður,
Berghildur Pálmadóttir aðalmaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Jóhanna Lind Brynjólfsdóttir fulltrúi foreldra.
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir, Sveitarstjóri
Lagt til að fyrstu tvö mál á dagskrá detti út þ.e
mál nr 1 2608010 Auðarskóli, málefni leikskóla 2026-2027
mál nr. 2 2608011 Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026-2027

Lagt til að máli nr. 2610024 - Reglur um skólasókn barna utan lögheimilissveitarfélags, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 2.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2601012 - Auðarskóli, málefni Tónlistarskóla 2026
Farið yfir starf tónlistadeildar Auðarskóla.
Farið yfir stöðuna á skólastarfinu þar sem af er skólaárinu.
2. 2610024 - Reglur um skólasókn barna utan lögheimilissveitarfélags
Tekið til umræðu að Dalabyggð setji sér reglur varðandi námsvist utan lögheimilissveitarfélags.
Farið yfir minnisblað verkefnastjóra dags. 26.10.2026 þar sem helstu sjónarmið reglna og viðmiða um námsvist utan lögheimilissveitarfélaga. Fræðslunefnd leggur til að unnar verði reglur um viðmið varðandi námsvist utan lögheimilissveitarfélags á grundvelli þeirra sjónarmiða og tillaga sem fram koma í minnisblaði og umræður á fundi.

Samþykkt samhljóða
3. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027
Gjaldskrár sem heyra undir nefndina lagaðar fram. Ákveðið hefur verið í sveitarstjórn að almennar gjaldskrár skuli ekki hækka umfram 2,5% í fjárhagsáætlun næsta árs.
Minnisblað verkefnastjóra lagt fyrir nefndina.

Lagt fram minnisblað verkefnastjóra dags. 27.10.2026 varðandi breytingar á gjaldskrám.

Fræðslunefnd leggur til að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar í Búðardal hækki um 2,5% á árinu 2027. Einnig leggur nefndin til að gjaldskrá Auðarskóla hækki ekki á næsta ári en að gjaldskráin breytist í samræmi við tillögur í minnisblaði verkefnastjóra fyrir utan eftirfarandi tillögur.
Að báðir foreldrar séu með 75% örorku til að falla undir afsláttarreglur.
Að einstæðir foreldrar fái áfram 40% afslátt uppfylli þeir skilyrði afsláttarreglna gjaldsskrár.

Samþykkt samhljóða
Audarskol-gjaldskra-2026.pdf
Gjaldskra-ithrottamidstodvar-i-Budardal-2026.pdf
4. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir stöðu á vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
Farið yfir þjónustusamninga sem falla undir málaflokka Auðarskóla. Lögð fram drög að fjárhagsáætlun næsta árs vegna fræðslu- og uppeldismála með breytingum á milli ára og farið yfir beiðnir um viðbótarfjármagn inn í málaflokka vegna tækja- og búnaðarkaupa. Fræðslunefnd leggur áherslu á að unnar séu áætlanir um endurbætur á búnaði og að skýr forgangsröðun sé til staðar varðandi endurbætur á húsgögnum og tækjabúnaði til kennslu. Horft sé til þess að unnin sé fjögurra ára áætlun þannig hægt sé að áætla fjármagn til næstu ára sem dugar til þess að aðstaða sé viðunandi.

Samþykkt samhljóða
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:06 

Til bakaPrenta