Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 266

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
03.03.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varaoddviti,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Eyjólfur Ingvi Bjarnason aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Garðar Freyr Vilhjálmsson aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2603001 - Lánasamningur - Lánasjóður sveitarfélaga
Fyrirliggjandi er heimild til lántöku í fjárhagsáætlun Dalabyggðar á árinu 2026 vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja og afborgana langtímalána og einnig liggur fyrir samþykki Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir lántöku til handa Dalabyggðar.

Hér er gerð eftirfarandi tillaga að bókun að undangengnum samskiptum við Lánasjóð sveitarfélaga ohf.:

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi dags. 3. mars 2026 að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 174.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórn hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til byggingar íþróttahús í Búðardal sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006 sem og til greiðslu afborgana á langtímalánum.
Jafnframt er Birni Bjarka Þorsteinssyni, sveitarstjóra, kt. 040768-5059, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Dalabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.
2. 2603002 - Aðalfundaboð 2026
Framlagt fundarboð á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem haldinn verður þann 25. mars n.k.
Þau Skúli Hreinn Guðbjörnsson og Ingibjörg Þóranna Steinudóttir eru aðalfulltrúar Dalabyggðar á fundinum.
Fundargerðir til kynningar
3. 2602029 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:15 

Til bakaPrenta