| |
| 1. 2603021 - Leikjanámskeið 2026 | |
| Í ljósi ofangreindrar stöðu er fræðslunefnd sammála um að setja í loftið sem fyrst auglýsingu þar sem auglýst verði eftir aðila eða félagasamtökum til að halda utan um skipulag sumar- eða leikjanámskeið. | | |
|
| 2. 2406005 - Íþróttamiðstöðin í Búðardal | |
Lýðheilsufulltrúi fór yfir stöðu mála. Rætt um umgengnisreglur í Íþróttamiðstöðinni og á sundlaugarsvæðinu. Til upplýsinga þá er nú búið að úthluta um 110 árskortum í Íþróttamiðstöðina og notkun á mannvirkinu heilt yfir góð það sem af er. | | |
|
| 3. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla | |
Formaður fræðslunefndar í fjarveru starfandi skólastjóra fór yfir stöðu mála. Kynnt voru fyrstu drög að skóladagatali fyrir næsta skólaárs, 2026 til 2027. Rætt um framkomin drög og tímasetningu einstakra viðburða. Skóladagatalið verður lagt fram til staðfestingar á næsta fundi fræðslunefndar eftir rýni allra umsagnaraðila.
| | |
|
| 4. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026 | |
Sveitarstjóri í fjarveru aðstoðarleikskólastjóra fór yfir stöðu mála. Kynnt voru fyrstu drög að skóladagatali leikskólans fyrir næsta skólaárs, 2026 til 2027. Rætt um framkomin drög og tímasetningu einstakra viðburða. Skóladagatalið verður lagt fram til staðfestingar á næsta fundi fræðslunefndar eftir rýni allra umsagnaraðila.
| | |
|
| 5. 2305001 - Skólaþjónusta | |
| Rætt um sérfræði- og stoðþjónustu í Auðarskóla m.t.t. þeirra þarfa sem uppi eru í skólakerfinu almennt og í Auðarskóla. | | |
|