Til bakaPrenta
Fræðslunefnd Dalabyggðar - 148

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
03.03.2026 og hófst hann kl. 13:45
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir formaður,
Guðrún B. Blöndal aðalmaður,
Þórey Björk Þórisdóttir aðalmaður,
Heiðrún Sandra Grettisdóttir varamaður,
Ragnheiður H Bæringsdóttir varamaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Sigríður Fjóla Mikaelsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Berghildur Pálmadóttir fulltrúi starfsmanna,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, Sveitarstjóri
Ísak Sigfússon lýðheilsufulltrúi sat fundinn undir lið 1.

Guðmundur Kári Þorgrímsson starfandi skólastjóri og Svanhvít Lilja Viðarsdóttir aðstoðarleikskólastjóri sátu allan fundinn.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal
Lýðheilsufulltrúi kynnti stöðu mála.
Lýðheilsufulltrúi fór yfir stöðu mála. Vígsluhátíð gekk vel laugardaginn 28.febrúar sl. og var mæting framar vonum. Sundlaug og heitir pottar komast í virkni upp úr miðjum mars mánuði og verður útisvæðið allt tekið í notkun á sama tíma.
Æfingar eru komnar á fullt og ánægjulegt að frá fyrsta degi sé íþróttasalurinn kominn í fulla notkun.
Talað um umgengnisreglur Íþróttamiðstöðvarinnar og þörfina fyrir að heimfæra átak varðandi umgengni og virðingu fyrir búnaði í aðrar einingar sveitarfélagsins sbr. grunn- og leikskóla og Dalabúð. Lýðheilsufulltrúi ásamt forráðamönnum skólans munu leiða þá vinnu með því að senda skilaboð út í samfélagið.
2. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026
Farið yfir stöðu mála í grunnskólanum.
Fyrirlögn á stöðu- og framvindupófum hófst í Auðarskóla í dag, þriðjudaginn 3.mars.
Skíðaferð í Tindastól fyrir 5. til 10. bekk verður farin í næstu viku. 1. til 4. bekkur fer síðan í dagsferð yfir á Strandir til að fara á gönguskíði.
Árshátíð Auðarskóla verður haldin 26. mars.
Starfandi skólastjóri fór yfir stöðu mála í ýmsu er lítur að innra starfi skólans.
3. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026
Farið yfir stöðu mála í leikskólanum.
Aðstoðarleikskólastjóri fór yfir stöðu mála í leikskólanum og gengur daglegt starf vel í skólanum. Nú eru 28 börn á leikskólanum.
Leikskólinn tekur þátt í árshátíð Auðarskóla þann 26. mars.
4. 2305001 - Skólaþjónusta
Rætt um sérfræðiþjónustu við Auðarskóla sbr. umræður á síðustu fundum nefndarinnar.
Farið yfir stöðu mála, fræðslunefnd styður við þá nálgun sem viðhöfð hefur verð undanfarið í grunnskólanum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30 

Til bakaPrenta