| |
Linda Guðmundsdóttir, verkefnastjóri DalaAuðs situr fundinn undir dagskrárlið 1.
| 1. 2404001 - DalaAuður - staða mála | |
Farið yfir stöðu starfsmarkmiða DalaAuðs, framhald verkefnisins og komandi viðburði.
Vífill Karlsson verður með erindi föstudaginn 28. júní kl. 12 í Nýsköpunarsetrinu þar sem hann fer yfir niðurstöður Íbúakönnunar landshlutanna.
Á bæjarhátíðinni verður örsýning í Nýsköpunarsetrinu, "Frumkvöðlar fortíðarinnar". Á sýningunni verða upplýsingar, myndir og munir frá horfnu atvinnulífi og starfsemi fyrri tíma í Dölunum til sýnis.
Nefndin þakkar Lindu fyrir komuna og samtalið. | | |
|
2. 2406020 - Málefni bænda vegna kuldatíðar í byrjun júní | |
Áföll sem þessi minna okkur á mikilvægi sjálfbærrar matvælaframleiðslu á Íslandi. Innlend og sjálfbær matvælaframleiðsla er hluti af þjóðaröryggi okkar. Afföll sem af þessu leiða geta haft verulegar og langvarandi afleiðingar á landsvísu, þar má bæði horfa til framleiðslunnar sjálfrar sem og stöðu og starfsumhverfi bænda. Hætta er á brottfalli úr greininni, hvort sem bændur fækka í bústofni eða hætta alfarið þegar áföll á borð við þetta bætast við brothætta stöðu atvinnugreinarinnar. Víða voru heybirgðir í vor með minnsta móti, eftir hretið eru allar líkur á að heyfengur verði með minna móti og því gæti reynst erfitt að koma þeim til aðstoðar sem hafa orðið hvað verst úti. Nauðsynlegt er að bíða ekki boðanna hvað varðar úrræði og aðstoð, því full áhrif munu ekki verða ljós fyrr en í haust/vetur þegar bændur hafa hirt fóður og tekið gripi á hús. Atvinnumálanefnd Dalabyggðar lýsir yfir samstöðu með bændum bæði innan héraðs og utan. Nefndin beinir því til stjórnvalda að vinna að gerð viðbragðsáætlunar vegna áfalla í landbúnaði ásamt því að tryggja bændum fjármagn til að bæta tjón sem af þeim hlýst. Hér skiptir forysta ráðherra landbúnaðarmála miklu máli. | | |
|
3. 2404009 - Forgangsröðun fjarskiptamála í Dalabyggð | |
Nefndin samþykkir framkomin drög og mun vinna prófarkalestur á næstu dögum með það að markmiði að skýrslan fari fyrir fyrsta fund sveitarstjórnar að loknu sumarleyfi. | | |
|
4. 2404014 - Forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð | |
Nefndin samþykkir framkomna uppfærslu og mun vinna prófarkalestur á næstu dögum með það að markmiði að skýrslan fari fyrir fyrsta fund sveitarstjórnar að loknu sumarleyfi. | | |
|
| |
5. 2406024 - Íbúakönnun landshlutanna 2023 | |
Nefndin fagnar jákvæðu viðhorfi ungs fólks í Dölunum sem fram kemur í íbúakönnuninni sem og hækkun Dalanna á milli kannana. | Ibuakonnun-landshlutanna-2023-nidurstodur.pdf | | |
|