| Til baka | Prenta |
| Sveitarstjórn Dalabyggðar - 264 |
Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
17.12.2025 og hófst hann kl. 16:00 | | Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varaoddviti,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Eyjólfur Ingvi Bjarnason aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
| | Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri | | | |
| | Dagskrá: | | | | | 1. 2505011 - Sameiningarkosningar Dalabyggðar og Húnaþings vestra | |
til máls tóku: IÞS, EJG, EIB, SHG og BBÞ.
Í framlagðri skýrslu sameiginlegrar kjörstjórnar Dalabyggðar og Húnaþings vestra um niðurstöðu íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna tveggja þann 28. nóvember - 13. desember sl. kemur fram að sameiningu var hafnað bæði í Dalabyggð og Húnaþingi vestra.
Í Dalabyggð voru 541 íbúa á kjörskrá og greiddu 326 kjósendur atkvæði. Já sögðu 125 (38,34%) og nei sögðu 196 (60,12%). Auðir og ógildir seðlar voru 5 (1,53%).
Í Húnaþingi vestra voru 981 íbúa á kjörskrá og greiddu 607 kjósendur atkvæði. Já sögðu 147 (24,22%) og nei sögðu 447 (73,64%). Auðir og ógildir seðlar voru 12 (1,98%).
Samkvæmt 21. gr. reglugerðar nr. 922/2023 um íbúakosningar sveitarfélaga, skulu kærur um ólögmæti íbúakosningar sendar ráðuneyti sveitarstjórnarmála innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga. Kærur þurfa því að berast ráðuneytinu í síðasta lagi laugardaginn 20. desember 2025.
Sveitarstjórn þakkar sameiningarnefnd og sameiginlegri kjörstjórn fyrir vel unnin störf og íbúum Dalabyggðar fyrir góða kjörsókn. Sveitarstjórn og íbúum Húnaþings vestra er jafnframt þakkað fyrir góða samvinnu í sameiningarviðræðunum. | | |
|
| | Tillaga er um að næsti fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verði að óbreyttu haldinn 12. febrúar 2026.
Samþykkt samhljóða. | |
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30 |
|
|
| Til baka | Prenta |