| |
1. 2208006 - Fjárhagsáætlun 2023 | |
Fræðslunefnd leggur áherslu á að horft verði til þess að starfsfólki Auðarskóla á öllum stigum standi til boða að sækja námskeið til að efla gott starf enn frekar.
Rætt um tómstundastyrk þann sem börnum/fjölskyldum í Dalabyggð stendur til boða, styrkurinn er kr.20.000,- á ári og hvernig mætti gera aðgengi að þeim stuðningi einfaldari en nú er.
Einnig rætt um þörf fyrir tómstundir fyrir börn í Dalabyggð yfir sumarmánuðina og hvernig mætti standa að því.
Rætt um mönnun félagssmiðstöðvar og það að mikilvægt er að tveir starfsmenn séu á vakt hverju sinni, fræðslunefnd felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að koma tillögum um tilhögun þess til byggðarráðs til úrvinnslu í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Einnig var rætt um fyrirkomulag á gæslu í tengslum við ferðir sem farið er með börn og unglinga.
Fræðslunefnd óskar eftir að horft verði til ofangreindra þátta við gerð fjárhagsáætlunar og áskilur sér að geta komið með fleiri ábendingar til byggðarráðs eftir því sem vinnunni fram vindur. | | |
|
2. 2208009 - Grunnskólamál - haust 2022 | |
Skólastjóri fór yfir stöðu mála og hvernig skólastarfið fer af stað í upphafi skólaársins. Starfsáætlun Auðarskóla er enn í drögum en unnið er að því að ljúka gerð áætlunarinnar. Ýmis vinna er í gangi í innra starfi skólans og sér senn fyrir endann á þeim þannig að í kjölfar þess mun Skólastefna Auðarskóla fyrir skólaárið 2022/2023 líta dagsins ljós.
Skólastjóri kynnti hvar vinna stendur við nýja heimasíðu Auðarskóla. Stefnt er að því að formleg opnun síðunnar verði uppúr miðjum október.
Skólastjóri kynnti fyrir hvað Skólapúlsinn stendur og hvaða möguleikar standa Auðarskóla/Dalabyggð til boða í því verkfæri sem margir skólar og fræðsluyfirvöld á landinu nýta sér. Fræðslunefnd mælir eindregið með þvi við byggðarráð og sveitarstjórn að Auðarskóli verði aðili að Skólapúlsinum.
| | |
|
3. 2205025 - Frístundaakstur | |
Formaður fræðslunefndar fór yfir stöðu mála, frekari gögn verða kynnt á næsta fundi fræðslunefndar. | | |
|
4. 2208010 - Tómstundir - haust 2022 | |
Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir minnisblað, sjá í fylgigögnum, varðandi starfið og hvernig það fer af stað.
Varðandi erindisbréf ungmennaráðs þá var íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að senda til byggðarráðs/sveitarstjórnar tillögur að breytingum á erindisbréfinu í anda þeirrar umræðu sem varð á fundinum.
Rætt um virkni foreldra og foreldraráðs í tengslum við bæði tómstundastarf og samskipti við skóla.
Varðandi reglur um félagsmiðstöð þá leggur fræðslunefnd til að bætt verði við 5.gr.reglnanna að skipaðir verði varamenn, jafnmargir aðalmönnum, sem skipaðir eru í félagsmiðstöðvarráð og einnig kveðið á um hvenær skuli kjósa í ráðið. 13. gr.verði yfirfarin og gerð ítarlegri. Einnig farið yfir orðalag í einstaka öðrum þáttum/liðum reglnanna. Íþrótta- og tómstundafulltrúi mun ræða reglurnar við ungmennin, nemendaráð og skólastjórnendur og kalla eftir þeirra sjónarmiðum áður en skjalið verður frágengið og formfest.
Fræðslunefnd þakkar íþrótta- og tómstundafulltrúa fyrir góða yfirferð. | fræðslunefndarfundur 27.sept. 2022.pdf | Reglur Hreysið.pdf | | Heiðrún vék af fundi kl. 17:10
| |
|
5. 2209017 - Tónlistarnám í Auðarskóla | |
Fræðslunefnd styður að viðkomandi fái skólavist í tónlistarskólanum. Jafnframt bendir fræðslunefnd á að endurskoða þurfi verklagsreglur um tónlistarskóla Auðarskóla samanber þær aðstæður sem hér um ræðir. | | |
|
| |
6. 1303013 - Framhaldsskóladeild í Búðardal | |
Fræðslunefnd er áhugasöm um að kanna möguleika til þess að starfrækja hluta framhaldsnáms í Búðardal. Formanni fræðslunefndar og sveitarstjóra falið að ræða við forráðamenn framhaldsskólanna á Vesturlandi um þá möguleika sem kunna að vera í stöðunni. | | |
|